Afmælisdagur Ævars og Sæla
Afmælisdagur Ævars og Sæla er sjálfstæður hluti af bókaflokknum Fjórir stafir í fókus sem er efni til lestrarkennslu.
Í bókinni Afmælisdagur Ævars og Sæla er lögð sérstök áhersla á stafinn æ með tíðri notkun orða með þeim staf.
Efnislega henta bækurnar börnum frá 6 - 10 ára. Framsetning ritmálsins, í bók og á skjá, er hins vegar miðuð við þarfir barna sem hafa ekki náð tökum á lestri.
Þegar Ævar verður stór ætlar hann að klífa hæstu tinda í heimi. Hann notar hvert tækifæri til að æfa sig, klifra og príla. Það gerir hann líka á afmælisdaginn sinn og lendir í vandræðum með Sæla vini sínum.
Panta bækurSkjáefni
Afmælisdagur Ævars og Sæla bls. 1-16
Afmælisdagur Ævars og Sæla bls. 17 – 36
Vinnubók
Afmælisdagur Ævars og Sæla – Vinnubók.pdf (48 MB)
Afmælisdagur Ævars og Sæla – Kennsluleiðbeiningar.pdf (3 MB)
Fjórir stafir í fókus
Aðrar bækur í bókaflokknum Fjórir stafir í fókus eru: Gauti, bestur í boltanum, Leyndarmálið og Réttir.